Sunday, October 6, 2013

Sveppasósa

Þessi sósa passar einhvern veginn með flestu.
Það er mismunandi hvernig tegund af krafti ég nota í sósuna, oft nota ég sveppakraft en annars fer það eftir kjötinu.

125 gr sveppir
1 dl vatn
1/2 - 1 teningur kjöt-/sveppakraftur
2,5 dl matreiðslurjómi
salt
maizenamjöl
sósulitur
smjör eða matarolía
annað krydd eftir þörfum

Skerið sveppi niður frekar smátt og steikið í smjöri eða olíu (mér finnst koma betra bragð ef smjör er notað). Bætið vatni og krafti út í og látið krauma í 2-3 mínútur.
Blandið matreiðslurjómanum út í og látið sjóða við vægan hita í 4-5 mínútur.
Jafnið með maizenamjöli. Bragðbætið með kryddi.

Friday, August 16, 2013

Kjúklinga- og sveppapasta

Ég man ekkert hvaðan þessi uppskrift kemur en þetta er ansi oft eldað á heimilinu og alltaf jafn gott. Það er langbest að nota ferskt basil, þurrkað gefur ekki jafn gott bragð.
Uppskriftin er miðuð við ca 200-250 gr af pasta.

hvítlaukur (eða hvítlauksolía)
2 litlar kjúklingabringur, skornar í bita
150 gr sveppir
rjómi
1 msk rjómaostur
salt og pipar
kjúklingakraftur
basil
tagliatelle pasta (gott að nota bæði hvítt og grænt)

Sjóðið pastað.
Steikið hvítlauk í olíu (eða notið hvítlauksolíu).
Steikið kjúklinginn, bætið niðurskornum sveppum við.
Kryddið eftir smekk og setjið kjúklingakraft saman við.
Bætið rjóma og rjómaosti saman við, látið malla í smá stund.
Blandið sósunni saman við soðið pastað.


Cajun Penne

Þessi uppskrift er heimatilbúin þannig að magn af ýmsu fer eftir smekk. Uppskriftin er miðuð við ca 200-250 gr af pasta eða svo.

2 litlar kjúklingabringur, skornar í litla bita
1 lítill laukur, saxaður
4 hvítlauksrif, söxuð
sveppir (ca 6-8 stk), skornir niður
1-1 1/2 paprika (gul+rauð), skorin í bita
rjómi
parmesanostur
cajun krydd (McCormick)
pipar
penne pasta

Sjóðið pastað í saltvatni.
Steikið kjúklinginn í smá olíu og kryddið. Setjið kjúkling til hliðar þegar hann er næstum tilbúinn.
Steikið lauk og hvítlauk í smá olíu. Bætið svo sveppum við, steikið aðeins áfram og bætið svo paprikunni við.
Setjið kjúklinginn saman við og síðan rjóma.
Látið malla í smá stund, bætið við kryddi ef þarf.
Setjið síðan svoldinn parmesanost út í og látið malla í smástund í viðbót.
Setjið síðan soðið pastað saman við.

Berið fram með meiri parmesan og góðu brauði.



Wednesday, May 8, 2013

Enchiladas með kjúklingi

Þetta er alltaf æðislega gott.

Enchilada sósuna er hægt að gera fyrirfram og frysta í hæfilegum skömmtum. Ath að hún gefur frá sér mjög mikinn rauðan lit þannig að það er gott að nota einnota ílát í frystinn.
Þetta er stór skammtur af sósu, dugir fyrir 24 enchilada rúllur.

Enchilada sósa

2 msk smjör
2 msk hveiti
5 tsk rautt chili duft
1 1/2 tsk cumin
2 tsk hvítlauksduft
170 gr tómatpure
2 1/4 bolli vatn
salt og pipar

1. Bræðið smjörið í potti.
2. Bætið hveitinu út í og blandið vel saman.
3. Setjið krydd og tómatpure saman við og hrærið þar til allt er vel blandað saman.
4. Bætið vatni smátt og smátt við og hrærið stöðugt.
5. Hitið að suðu.
6. Látið malla þar til þetta er orðið passlega þykkt. Hrærið reglulega í, þetta vill festast við botninn. Þarf að malla í ca. hálftíma.
7. Smakkið til og bætið við kryddi ef þarf.


Enchiladas

Magn fer eftir fjölda fólks, það má reikna með að einn skammtur fyrir fullorðinn séu 1-2 rúllur.
Tortilla kökur
Enchilada sósa
Tættur kjúklingur
Rifinn ostur

Enchilada sósa sett í botninn á eldföstu móti.
Tættur kjúklingur ásamt smá rifnum osti settur inn í tortilla köku og henni rúllað upp og sett í eldfasta mótið þannig að samskeytin snúi niður.
Þegar allar rúllurnar eru komnar í mótið er enchilada sósu smurt yfir alltsaman og rifinn ostur settur þar ofaná.
Bakist í ofni þar til osturinn fer að brúnast.

Gott með hrisgrjónum, nachos flögum og smátt skornu grænmeti (gúrka, tómatar, rauð paprika). Örugglega líka með sýrðum rjóma og guacamole fyrir þá sem fíla svoleiðis.







Tættur kjúklingur fyrir enchiladas ofl.

Ég fékk þessa uppskrift einhvers staðar af netinu fyrir mörgum árum.
Þetta er hægt að nota í enchiladas en líka quesadillas og örugglega ýmislegt fleira.
Frystist vel.

a) 4 kjúklingabringur
    1/2 meðalstór laukur, skorinn í sneiðar
    2 hvítlauksrif, marin
    1 msk salt
b) 2 msk smjör eða olía
    1 hvítlauksrif, pressað
    1/2 meðalstór laukur, saxaður
    1 meðalstór tómatur, fræin tekin úr og saxaður
    1/2 græn paprika, söxuð
    1 tsk mulinn svartur pipar
    1 tsk oreganó
    1 1/2 tsk cumin
c) 2 msk tómatpure (etv meira)
    salt eftir smekk
    2 dl af kjúklingasoðinu (etv meira)

1. Setjið a) innihaldsefnin í pott með vatni þannig að það rétt fljóti yfir kjúklinginn.
2. Komið suðunni rólega upp, setjið svo lokið á, lækkið hitann og látið malla í 20-25 mínútur eða þar til kjúklingurinn er tilbúinn.
3. Takið kjúklinginn úr pottinum, kælið aðeins og tætið í sundur. Geymið soðið.
4. Bræðið smjör (eða hitið olíu) á stórri pönnu.
5. Setjið b) innihaldsefnin á pönnuna og steikið rólega á pönnunni þar til þetta er orðið mjúkt.
6. Bætið tætta kjúklingnum út í og steikið í smá stund.
7. Bætið tómatpure og kjúklingasoði saman við og saltið eftir smekk.
8. Látið malla saman í smá stund.


Steiktur fiskur með parmesan-hafrahjúp

Þessi uppskrift varð til eftir nokkrar tilraunir til að gera góðan steiktan fisk með raspi úr haframjöli og parmesanosti.

Magnið passaði fyrir þrjá fullorðna og eitt barn.
Þetta magn af parmesanhaframjöli passaði fyrir þetta magn af fiski, ef notaður er meiri fiskur en þetta þarf að gera meira af parmesanhaframjölinu.

  ca 700 gr fiskur (t.d. þorskur)

  1/2 dl hveiti
  1/2 tsk paprikuduft
  1/2 tsk laukduft
  1/2 tsk hvítlauksduft
  salt og pipar

  1 egg
  smá mjólk

  1/2 dl rifinn parmesanostur (má vera aðeins meira)
  1 1/2 dl haframjöl
  1/2 tsk hvítlauksduft
  1/2 tsk laukduft
  3/4 tsk paprikuduft
  salt og pipar

  matarolía og smjör til steikingar

Fiskurinn skorinn í bita (betra að hafa bitana ekki of stóra) og kryddaður með salti og pipar.
Hveiti og kryddi blandað saman og sett í skál eða á disk.
Egg pískað með smá mjólk í skál.
Parmesanosti, haframjöli og kryddi blandað saman og sett aðeins í mixer þannig að haframjölið verði aðeins fíngerðara. Sett í skál eða á disk.

Fiskbitum velt upp úr hveitiblöndu, síðan eggjablöndu og loks parmesanhaframjöli. Steikt á pönnu úr blöndu af olíu og smjöri.

Gott með krydduðum kartöflum (t.d. eru þessar mjög góðar http://zoomyummy.com/2011/11/09/man-approved-spicy-oven-fries/) og kokteilsósu.





Tuesday, April 23, 2013

Hrökkbrauð

Ég fékk þessa uppskrift frá Hrafnhildi.

1 dl haframjöl
1 dl sólblómafræ
1 dl graskersfræ
1 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
1 dl ólífuolía
2 dl vatn
3 1/2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk salt

Hrærið öllu saman með sleif.
Skiptið deiginu í tvennt og setjið á sitthvora pappírsklædda bökunarplötuna.
Fletjið út með höndunum með bökunarpappír ofan á deiginu.
Skerið með pizzahjóli í ákjósanlega stærð.
Bakað í ofni við 175°C í ca 20-25 mín.

Samkvæmt Hrafnhildi er gott að strá smá osti yfir eða sjávarsalti þegar bökunartíminn er hálfnaður en ég hef ekki prófað það ennþá.