Wednesday, March 4, 2015

Fiskur með sveppa- og blaðlaukssósu

Ég hef notað þorsk í þennan rétt, en líklega henta fleiri tegundir af hvítum fiski líka.
Magnið af hráefnunum fer eftir smekk, en þetta er svona ca hvernig ég gerði þetta síðast.

Hrísgrjón, ca 1 1/2 - 2 dl (ósoðin grjón)
Þorskur, ca 500 gr
Nokkrir sveppir (ca 5-7)
Blaðlaukur (hvíti og ljósgræni hlutinn) (hálfur-einn)
Smjör
Matreiðslurjómi (eða mjólk) (ca 2 dl)
Salt
Pipar
Grænmetiskraftur (ca einn teningur, hluti í grjónin, hluti í sósu)
Sveppasmurostur (ca 3 matskeiðar)

Sjóðið hrísgrjón, gott að setja grænmetiskraft út í vatnið.

Saxið niður sveppi og blaðlauk, steikið upp úr smjöri. Bætið matreiðslurjóma og sveppasmurosti út á pönnuna, kryddið með salti, pipar og grænmetiskrafti. Látið malla þar til allt er vel blandað saman og osturinn hefur bráðnað.

Skerið fiskinn í bita, saltið og piprið.

Setjið soðin hrísgrjón í eldfast mót, svo fiskbita og loks sósuna ofan á.
Eldið við 200°C í ca 20 mínútur.