Ég fann þessa uppskrift á Pinterest og eftir að hafa prófað þessar þá er þetta uppskriftin sem ég nota alltaf.
1 1/2 bolli hveiti
3 1/2 tsk lyftiduft
1/2 - 1 tsk salt
1 msk sykur
45 gr bráðið smjör
1 egg
1 1/4 bolli mjólk
vanilludropar
Blandið þurrefnunum saman í skál.
Blandið eggi (við herbergishita), mjólk (volgri), bræddu smjöri og vanilludropum saman, hrærið svo saman við þurrefnin með písk þar til allt hefur blandast vel saman.
Látið deigið hvíla í 5 mínútur.
Steikið upp úr smá smjöri á pönnu við meðalhita.
Notið uþb 1/4 bolla af deigi fyrir hverja pönnuköku (það komast 3 pönnukökur fyrir á stórri pönnu í einu). Steikið í 2-3 mín, þar til loftbólur fara að myndast, snúið þá við og steikið í 1-2 mín til viðbótar.
Það verða ca 12 pönnukökur til úr þessari uppskrift.
