Showing posts with label Pizzasnúðar. Show all posts
Showing posts with label Pizzasnúðar. Show all posts

Tuesday, April 23, 2013

Pizzasnúðar

Þessir eru alltaf góðir. Ca 20 stk.

Deigið
7,5 dl hveiti
1,5 tsk salt
4,5 tsk þurrger (eða 13 gr pressuger)
1/2 tsk hvítlauksduft
1 tsk oreganó
1 tsk basil
1 tsk steinselja
3 dl volgt vatn
3 msk matarolía

Fyllingin
300 gr nautahakk
nokkrir sveppir, saxaðir
grænmetiskraftur (1/2 teningur)
hvítlauksduft
oreganó
basil
steinselja
paprikuduft

rifinn ostur

  1. Hnoðið deigið. Blandið fyrst saman öllum þurrefnunum og setjið svo vatn og matarolíu saman við. Látið deigið hefast á meðan fyllingin er útbúin.
  2. Steikið hakk og sveppi og kryddið eftir smekk.
  3. Stillið ofninn á 200°C.
  4. Fletjið út deigið þannig að það verði ferkantað og á stærð við ofnplötu.
  5. Setjið pizzusósu á deigið, passið að skilja eftir smá sósulausan kant öðrum megin.
  6. Dreifið fyllingunni yfir og setjið svo rifiinn ost (tæplega einn poka) ofaná.
  7. Rúllið deiginu upp.
  8. Skerið rúlluna niður í ca fingurþykkar sneiðar og setjið þær á pappírsklæddar bökunarplötur.
  9. Bakist í um 12 mínútur í ofni.