Magnið passaði fyrir þrjá fullorðna og eitt barn.
Þetta magn af parmesanhaframjöli passaði fyrir þetta magn af fiski, ef notaður er meiri fiskur en þetta þarf að gera meira af parmesanhaframjölinu.
ca 700 gr fiskur (t.d. þorskur)
1/2 dl hveiti
1/2 tsk paprikuduft
1/2 tsk laukduft
1/2 tsk hvítlauksduft
salt og pipar
1 egg
smá mjólk
1/2 dl rifinn parmesanostur (má vera aðeins meira)
1 1/2 dl haframjöl
1/2 tsk hvítlauksduft
1/2 tsk laukduft
3/4 tsk paprikuduft
salt og pipar
matarolía og smjör til steikingar
Fiskurinn skorinn í bita (betra að hafa bitana ekki of stóra) og kryddaður með salti og pipar.
Hveiti og kryddi blandað saman og sett í skál eða á disk.
Egg pískað með smá mjólk í skál.
Parmesanosti, haframjöli og kryddi blandað saman og sett aðeins í mixer þannig að haframjölið verði aðeins fíngerðara. Sett í skál eða á disk.
Fiskbitum velt upp úr hveitiblöndu, síðan eggjablöndu og loks parmesanhaframjöli. Steikt á pönnu úr blöndu af olíu og smjöri.
Gott með krydduðum kartöflum (t.d. eru þessar mjög góðar http://zoomyummy.com/2011/11/09/man-approved-spicy-oven-fries/) og kokteilsósu.

No comments:
Post a Comment