Tuesday, April 23, 2013

Hrökkbrauð

Ég fékk þessa uppskrift frá Hrafnhildi.

1 dl haframjöl
1 dl sólblómafræ
1 dl graskersfræ
1 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
1 dl ólífuolía
2 dl vatn
3 1/2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk salt

Hrærið öllu saman með sleif.
Skiptið deiginu í tvennt og setjið á sitthvora pappírsklædda bökunarplötuna.
Fletjið út með höndunum með bökunarpappír ofan á deiginu.
Skerið með pizzahjóli í ákjósanlega stærð.
Bakað í ofni við 175°C í ca 20-25 mín.

Samkvæmt Hrafnhildi er gott að strá smá osti yfir eða sjávarsalti þegar bökunartíminn er hálfnaður en ég hef ekki prófað það ennþá.




Pizzasnúðar

Þessir eru alltaf góðir. Ca 20 stk.

Deigið
7,5 dl hveiti
1,5 tsk salt
4,5 tsk þurrger (eða 13 gr pressuger)
1/2 tsk hvítlauksduft
1 tsk oreganó
1 tsk basil
1 tsk steinselja
3 dl volgt vatn
3 msk matarolía

Fyllingin
300 gr nautahakk
nokkrir sveppir, saxaðir
grænmetiskraftur (1/2 teningur)
hvítlauksduft
oreganó
basil
steinselja
paprikuduft

rifinn ostur

  1. Hnoðið deigið. Blandið fyrst saman öllum þurrefnunum og setjið svo vatn og matarolíu saman við. Látið deigið hefast á meðan fyllingin er útbúin.
  2. Steikið hakk og sveppi og kryddið eftir smekk.
  3. Stillið ofninn á 200°C.
  4. Fletjið út deigið þannig að það verði ferkantað og á stærð við ofnplötu.
  5. Setjið pizzusósu á deigið, passið að skilja eftir smá sósulausan kant öðrum megin.
  6. Dreifið fyllingunni yfir og setjið svo rifiinn ost (tæplega einn poka) ofaná.
  7. Rúllið deiginu upp.
  8. Skerið rúlluna niður í ca fingurþykkar sneiðar og setjið þær á pappírsklæddar bökunarplötur.
  9. Bakist í um 12 mínútur í ofni.






Sunday, April 14, 2013

Saltkringlu-rolo-pekanhnetu-nammi

Þetta er ótrúlega einfalt en svo gott.
Fékk "uppskriftina" af þessu frá Ernu Lind.

Saltkringlur (pretzels)
Rolo
Pekanhnetur

Saltkringlum raðað á bökunarpappírsklædda bökunarplötu og einn Rolo-moli settur á hverja kringlu. Sett inn í ofn (ca 200°C eða svo) í mínútu eða tvær (alls ekki of lengi). Um leið og platan er tekin úr ofninum er pekanhneta sett ofan á hvern Rolo mola og þrýst aðeins niður.
Látið storkna í kæli.