Deigið
7,5 dl hveiti
1,5 tsk salt
4,5 tsk þurrger (eða 13 gr pressuger)
1/2 tsk hvítlauksduft
1 tsk oreganó
1 tsk basil
1 tsk steinselja
3 dl volgt vatn
3 msk matarolía
Fyllingin
300 gr nautahakk
nokkrir sveppir, saxaðir
grænmetiskraftur (1/2 teningur)
hvítlauksduft
oreganó
basil
steinselja
paprikuduft
rifinn ostur
- Hnoðið deigið. Blandið fyrst saman öllum þurrefnunum og setjið svo vatn og matarolíu saman við. Látið deigið hefast á meðan fyllingin er útbúin.
- Steikið hakk og sveppi og kryddið eftir smekk.
- Stillið ofninn á 200°C.
- Fletjið út deigið þannig að það verði ferkantað og á stærð við ofnplötu.
- Setjið pizzusósu á deigið, passið að skilja eftir smá sósulausan kant öðrum megin.
- Dreifið fyllingunni yfir og setjið svo rifiinn ost (tæplega einn poka) ofaná.
- Rúllið deiginu upp.
- Skerið rúlluna niður í ca fingurþykkar sneiðar og setjið þær á pappírsklæddar bökunarplötur.
- Bakist í um 12 mínútur í ofni.
No comments:
Post a Comment