Monday, December 18, 2017

Grjónagrautur

Þetta er frekar stór uppskrift en það er mjög gott að eiga afgang, fínt að setja hann í rennilásapoka og frysta. Svo þarf bara að hita upp í potti og bæta við mjólk.
Það er nauðsynlegt að nota stóran pott og hafa ekki of mikinn hita undir pottinum þegar grauturinn byrjar að malla. Svo er bara að hræra og hræra svo að ekkert festist við botninn.

2 bollar grautargrjón
2 bollar vatn
2 tsk salt (meira ef vill)
1,5 - 2 lítrar nýmjólk

Sjóðið grjónin í vatni í 5 mínútur, bætið þá mjólk saman við í smáskömmtum. Látið malla í 30-40 mínútur eða þar til grauturinn er orðinn þykkur og grjónin mjúk.



Tuesday, December 12, 2017

Lax með grænmetisnúðlum

Lax (ca 500 gr) - skorinn í bita
Teriyaki sósa (etv smá sojasósa líka), ca 2 dl eða svo
Hvítlaukur - marinn, ca 2 hvítlauksrif
Engifer - rifinn, svipað magn og hvítlaukurinn
Safi úr ca 1/4 ferskri sítrónu

Öllu blandað saman og laxinn látinn marinerast í ca hálftíma.

Nokkrar gulrætur - skornar í litlar ræmur
Hvítkál, ca 1/4 lítill haus
Vorlaukur, 1-2 stk
Brokkolí, einn haus

Grænmeti skorið niður.
Brokkolí gufusoðið í örbylgju (sett í skál, ca 2 msk af vatni, diski hvolft yfir, ca 1,5-2 mín á hæsta styrk).

Hvítlaukur - marinn, ca 2 hvítlauksrif
Engifer - rifinn, svipað magn og hvítlaukurinn
Safi úr ca 1/4 ferskri sítrónu
Sojasósa, ca 3 msk

Eggjanúðlur (ca 200 gr)

Núðlur soðnar skv leiðbeiningum á pakka.
Fiskurinn (mest af marineringunni hent) steikur á pönnu þar til hann er næstum tilbúinn. Athuga að hafa ekki of háan hita því teriyaki sósan vill brenna.
Grænmetið steikt á pönnu (hvítkálið síðast, það vill brenna). Nota olíu eftir þörfum.
Hvítlauks-engifer-sítrónu-sojasósumauk sett úr á pönnuna og steikt áfram í smá stund.
Núðlum bætt við og steikt í smá stund. Bæta við olíu ef þarf.
Laxinum að síðustu bætt við og látinn hitna í gegn áður en þetta er borið fram.




Wednesday, March 4, 2015

Fiskur með sveppa- og blaðlaukssósu

Ég hef notað þorsk í þennan rétt, en líklega henta fleiri tegundir af hvítum fiski líka.
Magnið af hráefnunum fer eftir smekk, en þetta er svona ca hvernig ég gerði þetta síðast.

Hrísgrjón, ca 1 1/2 - 2 dl (ósoðin grjón)
Þorskur, ca 500 gr
Nokkrir sveppir (ca 5-7)
Blaðlaukur (hvíti og ljósgræni hlutinn) (hálfur-einn)
Smjör
Matreiðslurjómi (eða mjólk) (ca 2 dl)
Salt
Pipar
Grænmetiskraftur (ca einn teningur, hluti í grjónin, hluti í sósu)
Sveppasmurostur (ca 3 matskeiðar)

Sjóðið hrísgrjón, gott að setja grænmetiskraft út í vatnið.

Saxið niður sveppi og blaðlauk, steikið upp úr smjöri. Bætið matreiðslurjóma og sveppasmurosti út á pönnuna, kryddið með salti, pipar og grænmetiskrafti. Látið malla þar til allt er vel blandað saman og osturinn hefur bráðnað.

Skerið fiskinn í bita, saltið og piprið.

Setjið soðin hrísgrjón í eldfast mót, svo fiskbita og loks sósuna ofan á.
Eldið við 200°C í ca 20 mínútur.



Tuesday, February 24, 2015

Pizzupasta

Ég fann upprunalegu uppskriftina á Pinterest en er búin að breyta henni svoldið.
Það er hægt að breyta uppskriftinni eftir þörfum, allt sem hentar ofaná pizzu ætti að henta í þennan rétt.

250-300 gr penne pasta
250 gr nautahakk
1/2 - 1 laukur, saxaður
1-2 hvítlauksrif, söxuð
nokkrir sveppir
salt
pipar
paprikukrydd (ungversk paprika)
nokkrar sneiðar af pepperoni, skornar í bita
pizzasósa (ca 3 dl eða svo)
rifinn ostur

Sjóðið pastað í saltvatni.
Steikið hakkið, laukinn, hvítlaukinn og sveppina á pönnu og kryddið.
Blandið saman soðnu pasta, hakkblöndu, pepperoni og pizzasósu.
Setjið í olíuborið eldfast mót, rifinn ost yfir og e.t.v. smá pepperoni yfir ostinn.
Hitið í ofni við 200°C þar til osturinn hefur brúnast.




Monday, January 13, 2014

Skúffukaka

Ég fékk þessa uppskrift frá Helgu Hrönn mágkonu minni og finnst þetta hin fullkomna skúffukökuuppskrift. Ég notaði þessi uppskrift líka til að búa til barnaafmæliskökur og hún virkaði vel í það líka.

Kakan:
4 1/2 dl hveiti
4 1/2 dl sykur
1 dl kakó
1 tsk matarsódi
1/2 tsk lyftiduft
1 tsk salt
2 tsk vanilludropar
175 gr brætt smjör
2 egg
2 dl súrmjólk/AB mjólk
1 1/2 dl vatn

Blandið þurrefnunum saman í stórri skál (gott að sigta kakóið), blandið blautu efnunum saman í annarri skál og hellið síðan út í stóru skálina með þurrefnunum. Hrærið öllu saman í höndunum þar til allt hefur blandast. Ekki hræra of lengi.
Kakan sett í smurt form og bökuð við 200°C þar tiil hún losnar örlítið frá hliðum formsins. Ekki baka of lengi, kakan á að vera frekar blaut. Miðað við formið sem ég nota (ca 20*30 cm) þarf kakan um hálftíma í ofninum.

Krem:
250 gr flórsykur
65 gr brætt smjör
3 msk kakó
2 tsk vanilludropar
vatn til viðbótar þar til kremið er orðið passlega þykkt.







Frönsk súkkulaðikaka

Þessi klikkar ekki!

Kakan
2 dl         sykur
4             egg
200 gr     dökkt súkkulaði
200 gr     smjör
1 dl         hveiti

Kremið
200 gr     dökkt súkkulaði
70 gr       smjör
2 msk      sýróp

Sykur og egg eru þeytt saman og súkkulaði og smjör brætt saman í potti eða í skál í örbylgjuofni.
Súkkulaðiblöndunni bætt útí eggjahræruna og síðan hveitinu bætt í.
Sett í smurt mót og bakað í 30-45 mín við ca 150°C-170°C (miðað við blástursofn).
Kremið er einfaldlega brætt og smurt yfir kökuna kalda eða volga.
Borðað kalt eða volgt með rjóma eða ís.






Sunday, October 6, 2013

Sveppasósa

Þessi sósa passar einhvern veginn með flestu.
Það er mismunandi hvernig tegund af krafti ég nota í sósuna, oft nota ég sveppakraft en annars fer það eftir kjötinu.

125 gr sveppir
1 dl vatn
1/2 - 1 teningur kjöt-/sveppakraftur
2,5 dl matreiðslurjómi
salt
maizenamjöl
sósulitur
smjör eða matarolía
annað krydd eftir þörfum

Skerið sveppi niður frekar smátt og steikið í smjöri eða olíu (mér finnst koma betra bragð ef smjör er notað). Bætið vatni og krafti út í og látið krauma í 2-3 mínútur.
Blandið matreiðslurjómanum út í og látið sjóða við vægan hita í 4-5 mínútur.
Jafnið með maizenamjöli. Bragðbætið með kryddi.