Wednesday, March 13, 2013

Teriyaki lax

Þessi "uppskrift" er ansi einföld, en fínt að skrá þetta niður.
Magnið fer eftir fjölda fólks og svo bara smekk.

Lax
Hvítlaukur, saxaður
Rautt chili, saxað
Teriyaki sósa í flösku

Hvítlauk, chili og teriyaki sósu blandað saman og laxinn látinn marinerast í þessu í ca hálftíma eða svo.
Sett í eldfast mót og inn í ofn þar til laxinn er tilbúinn, ca korter eða svo.


Bakaður grænmetisfiskur

Þessi tilraun til að geyma uppskriftir á blogginu byrjar ekki vel, langt síðan síðast. En ég held samt áfram þessari tilraun.

Ég man ekki hvar ég fékk þessa uppskrift, líklega einhvers staðar af netinu. Ég elda þennan rétt reglulega og hann virkar alltaf.
Uppskriftin er svona fyrir ca 2 en ef hún á að vera fyrir fleiri þá setur maður bara aðeins meira af öllu.

ca 400 gr fiskur, skorinn í bita
salt og pipar
matarolía
5-6 sveppir, skornir í sneiðar
4-5 gulrætur, skornar í sneiðar
1 haus brokkolí, skorið niður
1 grænmetisteningur (2/3 í grænmetið, 1/3 í sósuna)
sveppasmurostur
mjólk

1. Niðurskorið grænmeti steikt í smá olíu, grænmetiskrafti blandað við. Látið krauma undir loki í smá stund.
2. Bræðið smurost í mjólk og setjið grænmetiskraft saman við.
3. Setjið fiskbita í eldfast mót sem hefur verið smurt með olíu. Kryddið með salti og pipar.
4. Setjið grænmetið yfir fiskinn og sósuna þar yfir. Bakist í ofni í ca 20 mín.

Gott að hafa hrísgrjón með þessu.




Sunday, February 17, 2013

Bakað pasta með beikoni og brokkolí

Þessa uppskrift fann ég á einhvers staðar á netinu en breytti henni svoldið áður en ég prófaði í fyrsta skipti. Okkur fannst þetta öllum mjög gott og munum pottþétt elda þetta aftur.


250-300 gr pasta, t.d. heilhveiti penne
3 egg
100 gr beikon
200 gr brokkolí (einn haus)
rifinn ostur (ég notaði mozzarella og smá cheddar)
3 skallotlaukar (litlir)
2 hvítlauksrif
salt og pipar
ólífuolía

Sjóðið pastað í saltvatni.
Skerið niður brokkolíið og gufusjóðið í ca 5-10 mínútur.
Skerið niður beikon og saxið skallotlauk og hvítlauk. Steikið á pönnu með smá ólífuolíu.
Bætið soðnu pastanu og gufusoðnu brokkolíinu við á pönnuna og blandið saman. Kryddið með salti og pipar.
Setjið þetta í ólíuborið eldfast mót. Pískið eggin saman og hellið yfir pastablönduna. Stráið rifnum osti yfir og setjið inn í ofn við 180°C þar til osturinn hefur brúnast og eggin hafa stífnað.

Gott með hvílauksbrauði.

Monday, February 4, 2013

Hafrakökur með rúsínum

Þessa uppskrift fann ég hér fyrir nokkrum árum. Hef bakað þessar kökur mjög oft og vinnufélagar mínir eru alltaf jafn glaðir þegar ég kem með þessar í vinnuna.
Galdurinn við þessar kökur er að hræra ekki of mikið eftir að hveitið er komið út í - og baka þær þangað til maður heldur að þær séu ekki alveg tilbúnar, alls ekki of lengi.

Það koma svona 30-40 kökur út úr uppskriftinni.

2 bollar hveiti
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
1 tsk salt
250 g mjúkt smjör
1 bolli sykur
1 bolli dökkur púðursykur, þétt í bollann
2 stór egg
2 tsk vanilludropar
3 bollar haframjöl
1 ½ bolli rúsínur

Forhitið ofninn í 180°C.
Blandið þurrefnum (hveiti, matarsóda, lyftidufti og salti) saman og setjið til hliðar.
Þeytið saman smjör, sykur, púðursykur og egg saman þar til létt og ljóst.
Bætið þurrefnum saman við þar til það hefur blandast alveg. Ekki hræra of mikið, þá gætu kökurnar orðið harðar.
Hrærið haframjöli og rúsínum saman við.
Setjið deigið á bökunarplötu með tveimur matskeiðum þannig að það myndist nokkurn veginn kúla. Látið vera gott bil á milli því að kökurnar renna út.
Bakið í 11-13 mínútur í ofni þar til kökurnar byrja að brúnast, en passið að ofbaka ekki. Kökurnar eiga að vera frekar mjúkar.

Deigið komið á plöturnar.

Nýkomnar úr ofninum.

Kökurnar kólna á grind.



Uppskriftirnar mínar

Ég er búin að vera heillengi að spá í hvar og hvernig sé best að geyma uppskriftirnar sem ég er alltaf að nota. Sumar þeirra eru í fínum bókum sem eru teknar út hillunni þegar á þeim þarf að halda en aðrar eru á lausum blöðum hingað og þangað, handskrifaðar inn í bók eða geymdar á tölvutæku formi hér og þar.
Þetta er tilraun til að koma einhverju skikki á þær uppskriftir sem ég nota oft, bæði nýjar og gamlar. Svo kemur í ljós hvernig þetta endar, hvort þetta verði snilldarlausn eða hvort ég gefist upp eftir nokkrar uppskriftir.